Velkomin á síðuna mína!!

31.12.2005 21:59:17 / tinna

Dangerous, groovy and curvy. The real danceing queen

hahaha...endilega kíkið á þetta og gerið ykkar eigið ;)!! Látið hana hreyfa sig!

http://www.muglets.com/NDM3

já, þetta er sexy! :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.12.2005 17:04:45 / tinna

Findu út hverjum þú ert líkur!

ég prufaði þetta og þetta er útkoman...

    

    

já ég er lík þessum stjörnum allavegana á þessari mynd

tjahh...ég veit nú ekki..

endilega kíkið og gáið hvaða stjörnu þið líkist

http://www.myheritage.com/FP/Company/tryFaceRecognition.php  


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.12.2005 17:51:49 / tinna

Þetta er snildar hljómsveit!

KÓSÍHEIT PAR EXELANS
Gibb / Fannsker / Sandeman

Afsakaðu allan þennan reyk inni,
ég var barað líta til með steikinni.
Hún er meir og mjúk - hún er eins og hugur manns.

Loksins ertu kominn hingað á minn fund;
finn svo gjörla - þetter töfrastund.
Úti vindur og fjúk - kósíheit par exelans.

Smakka sósuna - því mér finnst hún í það þynnsta.
Hún þarf korter enn - í það allra minnsta.
Og við setjumst að borðum - ha-ha.
Já við setjumst og borðum - ha-ha.

Réttu rauðkálið, grænu baunirnar
Viltu kartöflur, sykurbrúnaðar?
Hvernig smakkast svo? - Þetter yndislegt.
Jahá, en mest er þó gaman - ha-ha
að við skulum vera saman - ha-ha.

Góða veislu má ei skorta eftirrétt.
Eitthvað sem er saðsamt, en um leið svo létt.
Fáðér rúsínubrauð
-nær algerlega fitusnauð.

Allir þurfa jú að passa línurnar.
Viljum ekki enda eins og svín - er það?
Fokkitt - skítt með það - fáum okkur ögn meiri rjóma.

Viltu sérrítár? Eða kamparí í órans?
Æ, manstu vikuna okkar í Flórens?
Er við drukkum það saman - ha-ha.
Æ, hvað það var nú gaman - ha-ha.

Smökkum sörurnar, mömmukökurnar,
makkarónurnar - eplabökurnar.
Hvernig smakkast svo? Þetter dásamlegt!
Jahá, en mest er þó gaman - ha-ha
að við skulum vera saman - ha-ha.

Meira laufabrauð? Eða marensfrauð?
Hvar er konfektið? Er það upp urið?
Hvernig smakkast svo? Þetter æðislegt!
Jahá, en mest er þó gaman - ha-ha
að við skulum vera saman - ha-ha.

Hvar er beilísið? Hvar er sjampeinið?
Bættu toffíí æriskoffíið!
Hvernig smakkast svo? Þetter unaðslegt.
Jahá, en mest er þó gaman - ha-hah
að við skulum vera saman - ha-hah.

Fleiri textar og lög á http://www.baggalutur.is endilega kíkið, þetta eru frekar findnir textar! Þeir búa alltaf til eitt jólalag og eitt aðventulag á ári!


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2005 17:47:47 / tinna

haha...þetta er snild!

Besta svarið á stærðfræðaprófinu

Það er í rauninni ekki hægt að gefa vitlaust fyrir þetta!


» 15 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 23:44:11 / tinna

Það er skylda að gera þetta! :D

Comentaðu og...

1. Þú segir mér eitthvað handahófskennt um mig

2. Þú segir mér  hvaða lag minnir þig á mig

3. Þú segir mér  hvaða bragð minnir þig á mig

4. Þú segir mér eitthvað sem meikar bara sens fyrir þig og mig

5. Þú segir mér fyrstu ljósu minninguna þína af mér

6. Þú segir mér á hvaða dýr ég minni þig

7.Þú spyrð mig að einhverju sem þú hefur velt lengi fyrir þér um mig

8. Ef þú lest þetta þá verðuru að setja þetta á bloggið þitt..

 

 

Kveðja Tinna Hrönn


» 16 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 13:55:56 / tinna

myndirnar flæða inn

Ég er búin að vera ótrúlega dugleg frá því ég kom heim að setja myndir inn á þessa blessuðu síðu mína. Ég er einnig búin að flokka myndirnar í "gamlar myndir" og "nýjar myndir" einhverjum til mikillar gleði

-tinna hin duglega!


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 21:24:15 / tinna

Saumaklúbbsmyndirnar

Ég er búin að vera ótrúlega dugleg og er búin að setja myndirnar úr saumaklúbbnum í gær inná! Þær grófustu voru teknar út! ;)

Sérstakar þakkir fær Sóley fyrir að lána mér usb-tengið!

TAKK SÓLEY!! ÞÚ ERT YNDI!

njótið!


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 15:10:45 / tinna

æjja bæjja Unnur Birna Miss World!

 

Unnur Birna eða UB eins og hún kynnti sig, stóð sig bara með príði í Miss World. Greinilegt að fólk út um allan heim hefur kosið litla Ísland.

Hún átti greinilga ekki von á þessu en verðbankar ytra höfðu spáð henni sigri!

Unnur Birna er þriðja íslenska stúlkan sem hlýtur þennan titil, en Hólmfríður Karlsdóttir vann árið 1985 og Linda Pétursdóttir árið 1989.

Í öðru sæti varð ungfrú Mexíkó og ungfrú Púertó Ríkó varð í því þriðja.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni, en ég vil bara óska Unni Birnu til hamingju með sigurinn og ykkur Íslendingum fyrir að eiga fimmtugustu og fimmtu Miss World!


» 13 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 23:04:01 / tinna

?

Hefur ykkur eitthvern tíman liðið eins og þið hafið misst eitthvern eða eitthverja þó að hann/hún/þeir/þær/þau séu enn sprell lifandi?

eins og allir séu að fara frá þér...


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.12.2005 20:34:41 / tinna

fleiri myndir

ég er búin að setja fleiri myndir inn hvort sem ykkur líkar það eða ekki. Þessar eru svona einum degi yngri en hinar myndirnar (afmælið mitt) og nokkrum mánuðum yngiri(óvissuferðin eftir samræmdu).

-tinna hataða


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.12.2005 23:28:43 / tinna

Myndir

Ég er búin að vera ótrúlega dugleg við að setja myndir inn á þessa síðu, en ég er bara búin að setja myndir úr afmælinu hennar Hreindísar og á eftir að setja fleiri þegar ég hef tíma. Ég veit að ég er solldið sein í að setja þessar myndir inná en það verður bara að hafa það.

Mér er búið að leiðast frekar mikið í kvöld af því að ég er ein heima og hef ekkert að gera annað en að vera í tölvunni og horfa á sjónvarpið. Ég bara nenni ekki að læra!!!

Ef einhver nennir að tala við mig, þá endilega hringið í mig eða komið í heimsókn því ég er mjög einmanna akkurat núna!! ;) :( Bara þeir sem þekkja mig meiga hringja í mig af því að ég nenni ekki að tala við eitthvern sem ég þekki ekki!

Sjáumst eða heyrumst!

-tinna


» 37 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagsetning
19. mars 2010
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Leitarbox