góðan og blessaðan daginn, eða gott kvöld frekar

!! þá hef ég
loksins komist í tölvu svo að ég geti bloggað!! annars hefur bara
eiginlega ekkert gerst síðan seinast...eða jú!
verslunarmannahelgin!! það var bara mjög gaman hjá mér um
verslunarmannahelgina! ég fór til Akureyrar þar sem ég hitti
Fanney, Andreu, Kristjón Olgu og Arnór en ég var eiginlega bara með
Fanney, Andreu og Kristjóni þetta var bara allt mjög skemmtilegt!

Eftir verslunarmannahelgina fór ég að vinna og þá fór bara
skinkan og beikonið að gera árás á mig, meira en vanalega og ég er
með blöðru á litla putta

*tár* Svo var ég og strákur sem er líka
frekar nýr í vinnunni að vinna saman (bara tvö) og okkur var sagt
að taka kjúllan af hellunni kl þetta (man ekki kl hvað!) og við
bara okey! svo ætlaði hann að fara að taka hann og ég sagði honum
hvernig hann ætti að gera það (taka pottinn af hellunni hafa lokið
á og hella vatninu í vaskinn, án þess að hella kjúllanum líka, og
hella svo kjúllanum í fat) en hann sagði að það þyrfti tvo í það
vegna þess að þetta væri svo þungt og ég bara neinei (hafið oft séð
þetta vera gert)svo var ég bara frammi að afgreiða og ekkert
gerðist inni í eldhúsi, svo kom hann og sagði að hann skildi bara
afgreiða og ég skildi bara klára kjúllann og ég bara okey en
kláraði sammt að afgreiða með honum svo fór ég og gerði þetta með
kjúllann og þetta var bara eiginlega ekkert mál! brenndi mig reynar
aðeins á hendinni en það var allt í lagi! þannig að ég er í
rauninni bara sterkari en 20 ára gaur!

En ég hef bara ekkert
meira að segja ykkur! sæl að sinni! Tinna sterka og brunablaðran!