Núna er helmingurinn af prófunum búinn og maður fer að sjá fyrir
endann á þessu öllu saman. Afmælin farin að streyma inn og allir
fanir að panta dag! Það á bara að vera stuð í sumar, reyndar ásamt
því að vinna, en það getur verið skemmtilegt líka!
Svo er það
bara Ítalía eftir 35 daga held ég, allavegana eftir talningu ýmissa
aðila. Vííí...ég er svo spennt!
sól, hiti, strönd, þetta
getur ekki verið betra! 
En það styttist óðum í Eurovision og ég fann eina annsi
skemmtilega síðu þar sem hægt er að skoða allt sem tengist
Silvíu, nýjusu fréttir, myndbönd, myndir, bók um feril hennar,
spákúlu og uppáhalds síðurnar hennar! Ef þið viljið skoða þetta
fariði þá bara inná http://silvianight.com/ mjöög
áhugavert! 
En ég er að spá í að fara að vera dugleg og læra píulítið fyrir
næsta próf!
-Tinna Hrönn-